Fram á þriðjudagskvöld?
Já já, skemmtilegt lag þar á ferðinni

Ég sit hérna ein í eldhúsinu heima hjá mér að drekka Thule á ekki svo
rosa slæmu þriðjudagskvöldi..nýkomin af coffee in good spirits æfingu
með Kristínu..svaka stuð hjá okkur náttúrulega, rétt eins og búist var
við

Ég hefði alveg verið til í að drekka fleiri irish coffee..en ég var víst á bíl

Núna er ég bara að velta lífinu létt fyrir mér...
framundan eru nauðvitað öll mótin og svo er ég að fara að flytja !!!
Hlakka ekkert smá til þess verð ég að segja..það verður æði að búa með
henni Ingibjörgu

En þegar allt þetta er búið og það er kominn mai...hvað tekur þá við???
Verður lífið bara rólegt? eða finn ég mér eitthvað fleira að gera svo
ég sitji nú ekki auðum höndum öll kvöld? Þetta eru sko svaka pælingar
hjá mér..
Svo er maður alltaf að hugsa um að reyna að mennta sig eitthvað..klára
allavega stúdentinn..á nú ekki svo langt eftir í hann, bara tæpar 40
einingar!
En ég veit ekki...hvernig stendur á því að stelpan sem var alltaf með
allt á hreinu sló öllu svona hrottalega upp í kæruleysi og veit ekkert
í sinn haus lengur?
Ég fékk spurningu um daginn.."Hvar sérðu sjálfa þig eftir 5 ár?"
Ég verð að viðurkenna að ég er ekki með nein framtíðar plön! Veit
ekkert hvað ég vil og er að verða hrædd um að sóa bara lífinu í
einhverja vitleysu og verða kellingin í hverfinu sem allir eru hræddir
við af því að hún er svo bitur út í lífið og hatar allt og alla!
Nei, mig langar ekki að verða svoleiðis...
Já, það er gott að vita hvað maður vill ekki..þó að maður viti ekki hvað maður vill
En skipulegða mannseskjan ég er farin að slá öllu upp í kæruleysi og allt er komið í kaós í mínu lífi finnst mér..
Bjórinn er samt alltaf á sínum stað, ekki svo langt frá mér

Mér finnst líka eins og fólk sé farið að líta hálf furðulega á mig...Hva' áttu engan mann og engin börn? og orðin þetta gömul?
Það er kannski spurning um að láta frysta úr sér egg eða tvö, svona til að hafa just in case
Úff, núna er bjórinn búinn og ég er að spá í að ná í annan..
Jæja..núna er ég búin að opna seinni bjórinn..
Tveir á dag, koma skapinu í lag

Æj, ég vona að þessu svartsýnis kasti mínu fari nú að ljúka..það er
örugglega bara af því að ég er á túr!! Ég hata þetta helvíti, og gamalt
fólk..sérstaklega gamla kalla OJ!
Já..það er nú ekki oft sem ég læt dæluna ganga á þessu blessaða bloggi
mínu..og það nennir örugglega enginn að lesa þetta

En ég held sams
bara áfram að láta það gossa hérna..það er svo gott að losa um

En fyrst ég er að þessu á annað borð...þá langar mig að auglýsa eftir
sætum strák sem er til í sumarást

Ég held að ég þurfi á því að halda
haha
Ég meina..fólk er farið að halda að ég sé samkynhneigð! Ekki það að ég
hafi neitt á móti samkynhneigðum, alls ekki, langt því frá..ég er bara
ekki ein af þeim..og ég vona að karlpeningurinn haldi ekkert annað en
að ég sé bara svona töff rokkari haha

En að einhverju skemmtilegra og meira upplífgandi..þar sem seinni bjórinn er nú að verða hálfur..
Ég er að fara til Akureyris um páskana og ætla að djamma svo feitt...
er samt með það takmark að vakna ekki aftur í Hrafnagili eins og ég gerði síðast þegar ég djammaði þar haha
En það er verið að fara að ferma brósa litla..þó að hann sé nú orðinn hærri en ég í loftinu

En mamma ætlar að vera með íbúð svo við gistum öll þar..hlakka svo mikið til að geta knúsað þau öll

En ég held samt best að segja að þetta fari nú að verða gott hjá mér..
búin að bulla bara eitthvað út í loftið og þetta meikar örugglega voða
lítið sens hjá mér..allt slitið úr samheng i og ég veit ekki hvað og
hvað
eníveis...wish me luck næsta þriðjudag
auf wiedersehen
Kata