24.02.2008 23:03:05 / kartafla
TGI Fridays...
Ég fór út að borða á Fridays í kvöld sem væri nú ekki frásögu færandi..
nema hvað..ég hef aldrei farið þangað áður og kem aldrei nokkurn tíman til með að fara þangað aftur!!!
það er kannski allt í lagi að bíða eftir matnum í 3 helvítis korter ef
maður er að fara á besta og flottasta veitinga stað í heimi!!! En fólk
á 2 borðum sem pantaði á EFTIR okkur fékk matinn sinn á undan okkur..og
annað borðið fékk bæði forrétt og aðalrétt á undan okkur!!!
Svo loksin þegar við fengum matinn, sem kom sko heldur betur ekki allur
í einu og pantanirnar voru rangar..þá var maturinn ógeðslegur.
ég fékk mér hamborgara..brauðið var greinilega gamalt, beikonið var
seigt og hart og borgarinn sjálfur var þurrari en pappakassi..og svo
var það frekar augljóst að hann var ekki nýeldaður því þetta var allt
saman skítkalt nema franskarnar..þær voru volgar.
Mig langaði bara að deila þessu með ykkur og vara ykkur við að fara á þennan hrikalega stað
Never again takk fyrir
kveð að sinni úr kópavoginum
Matur og drykkur
Slúður
Alþjóðamál