Jæja...
Þá e það spurningin hvað á daga mína hefur drifið...
Bara að ég myndi það sjálf
haha
En ég er allavega að fara að vinna uppi í smáralind...byrja annaðhvort núna á laugardaginn eða á mánudaginn....en þar sem ég á að vera í fríi á mánudag vona ég að ég verði í smáralindinni um helgina svo ég fái að vera þar þegar opnunin verður hmm..
jámm, það verður sko heldurbetur furðulegt að vera ekki í Kringlunni lengur, og já ég á sko heldur betur eftir að sakna bróður míns. Það er eins gott að hann Júdas verði duglegur að koma við hjá mér
Jámm...það hefur sko margt breyst á þessu ári skal ég ykkur segja..ég er búin að skella mér á deit og svona, og er víst á leiðinni á svoleiðis aftur. nema hvað í það skiptið verður það eiginlega bara blint held ég!!! læt betur vita hvernig það gekk þegar því er lokið haha
En nú er árið senn liðið og ég gerði svona helminginn af öllu því sem ég ætlaði að gera á árinu..fór til dæmis ekki til útlanda, hef ekki enn drullað mér í ljós, ekki komin með nýtt tattoo og svo fram eftir götunum..
en til að rifja upp það sem ég afrekaði:
ég vann Diddu í sleik-keppni 
ég fékk bílprófið aftur jei!
fór á deit í 1. skipti á ævinni
verðlaun voru skýrð í höfuðið á mér (Katan)
fór á Jeff Buckley tribute tónleika
varð ófáum til skemmtunar og hláturs
...ég man ekki fleira í blikinu, en endilega kommentið e-ð skemmtilegt til upprifjunar fyrir árið 2007 
En núna er ég búin að vera æði dugleg að blogga svo þessu fer brátt að ljúka kindurnar mínar. En það er gaman að minnast á það að ég er að fara í klippingu á morgun og hlakka brjálað mikið til
þar til næst:
Sértu með bjór, ertu í gírnum =)